Logar
Hljómsveitin Logar var stofnuð í Vestmannaeyjum árið 1964. Upphaflegu meðlimir hljómsveitarinnar voru Grétar Skaptason, Helgi Hermannsson, Henry A. Erlendsson, Hörður Sigmundsson og Þorgeir Guðmundsson.
Sveitin náði strax miklum vinsældum í Vestmannaeyjum og spilaði hverja helgi í Samkomuhúsinu auk þess sem dansleikir voru stundum haldnir á virkum dögum. Vinsældir sveitarinnar bárust til fastalandsins og árið 1974 rokseldu Logar hljómplötuna Minning um mann.
Heimildir
- Fréttablaðið. 11. september 2004, bls. 18.