Ásmundur Friðriksson (Löndum)
Ásmundur Friðriksson fæddist 31. ágúst 1909 og lést 18. nóvember 1963. Ásmundur var sonur Friðriks Svipmundssonar og Elínar Þorsteinsdóttur. Þau bjuggu nær allan sinn búskap Löndum í Vestmannaeyjum. Árið 1934 kvæntist Ásmundur fyrri konu sinni Elísu Pálsdóttur og eignuðust þau tvö börn. Síðari kona Ásmundar var Þórhalla Friðriksdóttir og eignuðust þau tvö börn.
Ásmundur fór í Menntaskólann á Akureyri að loknu barnaskólanámi með góðri einkunn. Eftir það fór hann á sjóinn og var meðal annars á skipstjóri á Friðþjófi, Sjöstjörnunni og Keflvíking.
Heimildir
- G.S. Sjómannadagsblað Vestmannaeyja. 1964.