Guðsteinn Þorbjörnsson
Guðsteinn Ingvar Þorbjörnsson frá Reynifelli fæddist 6. september 1910 og lést 14. febrúar 1995. Foreldrar hans voru Margrét Gunnarsdóttir og Þorbjörn Arnbjörnsson. Þau bjuggu á Vesturvegi 15b, Reynifelli.
Kona Guðsteins var Margrét Guðmundsdóttir. Á meðal barna þeirra var Reynir Guðsteinsson skólastjóri.
Guðsteinn var formaður á mótorbátnum Unni.
Óskar Kárason samdi formannavísu um Guðstein:
- Guðsteinn heitir arkar ás,
- ýtinn sjós á grunni.
- Dragnótar þá dregur lás,
- drjúgan hleður Unni.
Myndir
Heimildir
- Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.