Jón Jónsson (prestur)
Jón Jónsson. Hans er getið árið 1587 í sambandi við skipaeign Eyjabúa. Séra Jón stóð að hinum gagnyrtu kærumálum Eyjabúa til höfuðsmanns árið 1583. Og árið 1592 er hann dæmdur á tillegg staðanna í Sunnlendingafjórðungi sem uppgjafaprestur.
Heimildir
- Guðlaugur Gíslason: Eyjar gegnum aldirnar. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.