Júlíus Ingibergsson (Hjálmholti)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 21. júní 2006 kl. 14:59 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 21. júní 2006 kl. 14:59 eftir Margret (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Júlíus Ingibergsson, Hjálmholti, fæddist í Vestmannaeyjum 17. júlí 1915. Foreldrar hans voru Ingibergur Hannesson og Guðjóna Pálsdóttir. Árið 1935 byrjar Júlíus formennsku á Sæbjörgu en eftir það er hann með fleiri báta, meðal annars Karl, Vestra og Ingólf. Árið 1946 kaupir hann, ásamt bróður sínum, Reyni I og síðar Reyni II þar sem hann var vélamaður.



Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.