Árni Þórarinsson (Eystri Oddsstöðum)
Árni Þórarinsson, Oddsstöðum, fæddist að Fossi í Mýrdal 25. maí 1896. Foreldrar hans voru Þórarinn Árnason og Elín Pálsdóttir. Árið 1908 flutti fjölskyldan til Vestmannaeyja. Árið 1915 byrjar Árni sjómennsku á Gideon hjá Eyvindi Þórarinssyni bróður sínum. Árni tók við formennsku á Goðafoss árið 1917. Hann er með hann til vertíðarloka ársins 1925.
Árni var aflakóngur Vestmannaeyja 1918, 1920 og 1926.
Heimildir
- Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.