Guðjón Jónsson (Reykjum)
Guðjón Jónsson, Reykjum, er fæddur 10. febrúar 1892 að Selalæk á Rangárvöllum. Árið 1908 kemur Guðjón til Vestmannaeyja og var þá á Fálka hjá Magnúsi í Sjólist. Síðar er Guðjón sjómaður á ýmsum bátum, meðal annars á Erni hjá Friðriki Svipmundssyni. Formennsku hefur Guðjón árið 1921 á Kóp. Síðar er hann meðal annars formaður á Franz og Gullfoss.
Heimildir
- Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.