Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 2001/ Sjómannadagurinn 2000

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 24. janúar 2017 kl. 11:45 eftir Karibjarna2 (spjall | framlög) Útgáfa frá 24. janúar 2017 kl. 11:45 eftir Karibjarna2 (spjall | framlög) (Ný síða: <center>'''VALMUNDUR VALMUNDSSON'''</center><br> <big><big><big><center>'''Sjómannadagurinn 2000'''</center></big></big></big><br><br> Undirbúningur dagsins hófst að venju sköm...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
VALMUNDUR VALMUNDSSON



Sjómannadagurinn 2000



Undirbúningur dagsins hófst að venju skömmu eftir áramót með alls konar reddingum, s.s. ráða skemmtikrafta hljómsveitir o.s.frv. Í maí fór allt á fullt og er farsíminn nú orðinn þarfasti þjónninn í þessum undirbúningi. Samkvæmt símareikningi var talað rúma fimm klukkutíma í maí og fram að sjómannadegi, einungis í minn síma og bólgið eyra fylgdi með.
Síðustu vikuna fyrir Sjómannadag voru undirritaður og gjaldkeri ráðsins, Grettir I. Guðmundsson, í landi til að koma öllu á hreint fyrir helgina og gekk það nokkuð vel.
Föstudagurinn var frábær gott veður og enn þá betri knattspyrnukeppni sem Jói Ben. stýrði af mikilli röggsemi. Sáust þar gamlir taktar og nýir hjá mörgum sjómanninum hvort sem hann var í kjörþyngd eða með dálítið varadekk um sig miðjan.
Um kvöldið var dansiball fyrir unglingana í Týsheimilinu með hljómsveitinni Skítamóral. Þar var fjölmenni og skemmtan góð. Þetta ball kom vel út og verður örugglega framhald á.
Laugardagurinn var með hefðbundnu sniði. Dagskrá hófst í Friðarhöfn kl. 13.30.
Kappróður var fyrst á dagskrá og reyndar eina atriðið á vegum Sjómannadagsráðs vegna ónógrar þáttöku í öðrum atriðum. Það virðist vera orðið þannig að sjómenn vilja ekki reyna sig í hinum hefðbundnu Sjómannadagsgreinum s.s. reiptogi, netabætingu o.s.frv. og verður að fara að endurskoða þessi atriði og finna ný sem menn nenna að spreyta sig á. Bylgjulestin var með dagskrá í Friðarhöfn og á Stakkó. Í Friðarhöfn var fitnesskeppni þar sem sterkir strákar og stæltar stelpur reyndu með sér undir stjórn hins handstóra Andrésar Guðmundssonar. Á Stakkó fjölbreytt dagskrá hjá Bylgjumönnum sem tókst mjög vel.
Um kvöldið var svo aðalskemmtunin. Borðhald á tveimur stöðum, í Týsheimili og í Alþýðuhúsi. Í Týsheimilinu vom alls konar skemmtiatriði, K.K. og Maggi Eiríks sýndu hvað í þeim býr og Sigurjón á Þórunni Sveins og hans fólk fór á kostum og dró margan manninn og konuna út á gólf í alls konar sprell. Síðan tóku Björgvin Halldórsson og hljómsveit til hendinni og spiluðu fram undir morgun.
Sunnudagurinn byrjaði eins og ávallt, fánar dregnir að húni kl. 10.00. Sjómannamessa var kl, 13.00, ákaflega hátíðleg í alla staði og ungur einsöngvari frá Siglufirði, Hlöðver Sigurðsson, söng með kórnum. Eftir messu var safnast saman við minnisvarða hrapaðra og drukknaðra við Landakirkju og minntist Snorrí Óskarsson, Betelklerkur, hraustra drengja og kvenna, sem hafið og björgin hafa tekið, af sínum alkunna skörungskap og orðsnilld í öllu því sem snýr að almættinu.
Hátíðardagskrá hófst á Stakkó síðar um daginn með leik Lúðrasveitar Vestmannaeyja og ræðumaður dagsins var Guðmundur Árni Stefánsson alþingísmaður. Verðlaun fyrir keppnisatriði voru veitt og aldraðir sjómenn voru heiðraðir og mærðir af Betelklerki, Snorra Óskarssyni. Á eftir léku K.K. og Maggi Eiríks af fingrum fram. Var nú hefðbundinni dagskrá lokið og tími kominn til að pakka saman og taka til eftir helgina og gekk það ágætlega.