Bakkastígur 7
![](/images/thumb/0/06/Bakkastigur_7.jpg/250px-Bakkastigur_7.jpg)
![](/images/thumb/4/41/Bakkastigur_saetun_fridthjofur.jpg/250px-Bakkastigur_saetun_fridthjofur.jpg)
Í húsinu sem stóð við Bakkastíg 7 sem byggt var árið 1950. Ólafur Erlendsson og Jórunn Sigurðardóttir byggðu húsið. Árið 1953 bjuggu í húsinu Magnús Jónsson og Soffía Alfreðsdóttir ásamt dóttur sinni Hrefnu Magnúsdóttur. Hjónin Inda Friðþjófsdóttir og Sigurður Friðbjörnsson, og sonur þeirra Friðþjófur Már. Á efri hæð bjuggu hjónin Óskar Ólafsson prentari og Jóhanna Ágústsdóttir. Þau bjuggu í húsinu þegar byrjaði að gjósa 23. janúar 1973.
Heimildir
- Íbúaskrá Vestmannaeyja 1. desember 1972.
- Verkefni Húsin undir hrauninu 2012.