Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1984/ Ljóð eftir Lýð Ægisson skipstjóra
Ljóð eftir Lýð Ægisson skipstjóra
Þeir sem ganga hinn gullna veg gleði og blessun hljóta. Ævi hinna er ömurleg sem öllu bölva og blóta.
Þú ert blautur en býsna klár berð þig vel í þynku. Þolir allvel frost og fár og fyrirlítur linku.
En Bakkus gamli brýtur allt og brenglar öllum vonum. Þeim löngum reynist lánið valt sem leika sér að honum.
Hafðu frá mér heillaráð — hættu stút að naga —. Þá líf þitt verður ljóma skráð og ljúf þín ævisaga.
19. mars 1983 MINN BESTI VIN
Oft ég Ieiði hugann heim til þín
og horfi oní æskusporin mín.
Ég minnist þess hve mild þú varst og góð.
Mamma, ég þér helga þetta ljóð.
SJÓMANNADAGSBLAÐ VESTMANNAEYJA
Margt var erfitt æskuárin mín ótal margt sem hrelldi litla sál. Þá man ég alltaf mildu orðin þín þá miklu ást sem sérhvert slökkti bál.
Fyrstu árin man ég furðu vel
finn þann yl sem fékk ég þá þér frá.
Ég næturvökur þær ei núna tel
en nýt þess enn hve natin varstu þá.
Ef allir ættu einhvern að sem þig einhvern sem að stæði slíkan vörð. Og hefðu öðlast heppni á við mig þá himnaríki væri hér á Jörð.
Þú átt skilið indælt ævikvöld þar sem einlæg ást og gleði hafa völd. Því ætla ég, ó elsku mamma mín í ellinni að fá að gæta þín.