Þorkatla Bjarnadóttir (Bjarmahlíð)
Þorkatla Bjarnadóttir húsfreyja í Bjarmahlíð, Brekastíg 26, fæddist 25. febrúar 1893 og lést 13. júlí 1975.
Faðir hennar var Bjarni bóndi og sjómaður á Þórkötlustöðum í Grindavík 1890, Melbæ þar 1910, dvaldi í skjóli Þorkötlu síðust ár sín, f. 12. ágúst 1855, d. 12. febrúar 1932, Jónsson bónda á Þórkötlustöðum, f. 14. nóvember 1825, d. 13. desember 1882, Jónssonar bónda í Garðhúsum í Grindavík, f. 1780, d. 30. janúar 1841, Jónssonar, og konu Jóns í Garðhúsum, Guðrúnar húsfreyju, f. 1798, Jónsdóttur.
Móðir Bjarna og kona (1850) Jóns á Þórkötlustöðum var Valgerður húsfreyja, f. 7. febrúar 1829 á Hrauni í Grindavík, d. 25. júní 1895 í Akurhúsum þar, Guðmundsdóttir bónda í Kirkjuvogi í Höfnum og á Hrauni í Grindavík, f. 1792 á Járngerðarstöðum í Grindavík, d. 30. september 1854 á Hrauni, Jónssonar bónda á Járngerðarstöðum, f. 1746, d. 23. ágúst 1831, og annarrar konu Jóns á Járngerðarstöðum, Margrétar húsfreyju, f. 1755, d. 14. desember 1809, Andrésdóttur.
Móðir Valgerðar á Þórkötlustöðum og kona Guðmundar á Hrauni var Valgerður húsfreyja frá Klængseli í Gaulverjabæjarhreppi, f. 1794, d. 1. júlí 1850 á Hrauni, Hafliðadóttir bónda í Klængseli 1801, f. 1764, d. 29. júlí 1821, Þorvaldssonar, og konu Hafliða, Guðrúnar húsfreyju, f. 1761, d. 30. september 1821, Jónsdóttur.
Móðir Þorkötlu og kona Bjarna var Kristín húsfreyja í Grindavík, f. 14. júlí 1863, d. 4. nóvember 1919, Hermannsdóttir sjávarbónda og vefari í Buðlungu í Grindavík, f. 18. mars 1834, d. 9. júní 1911, Jónssonar bónda í Hoftúni á Stokkseyri 1819-1826, síðan vinnumanns í Eystri-Móhúsum þar, f. 24. mars 1793, d. 8. október 1872, Hallssonar, og barnsmóður Jóns Hallssonar, Þuríðar vinnukonu í Eystri-Móhúsum, f. 1807, d. 1839, Sveinsdóttur á Syðra-Seli þar Jónssonar.
Móðir Kristínar og kona Hermanns var Guðrún húsfreyja í Buðlungu í Grindavík, f. 15. ágúst 1835, d. 12. maí 1903, Sveinsdóttir, Akurhúsum í Grindavík 1835 og 1845, f. 1794, d. 1858, Jónssonar bónda á Járngerðarstöðum, f. 1746, d. 23. ágúst 1831, Jónssonar, og annarrar konu Jóns á Járngerðarstöðum, Margrétar húsfreyju, f. 1755, d. 14. desember 1809, Andrésdóttur. (sjá ofar: Sveinn Jónsson og Guðmundur Jónsson voru bræður).
Maður Þorkötlu var Kristófer Þórarinn Guðjónsson frá Oddsstöðum, f. 27. maí 1900, d. 11. apríl 1981.
Börn Þorkötlu og Kristófers voru:
1. Guðlaugur, f. 25. desember 1922, d. 24. júlí 2002.
2. Freyja, f. 21. september 1924.
3. Guðrún, f. 10. desember 1925.
4. Guðjón, f. 26. desember 1929, d. 9. apríl 1995.
Þorkatla var systir Tómasar Bjarnasonar, manns Njálu Guðjónsdóttur systur Kristófers.
Guðbjört Guðbjartsdóttir húsfreyja á Einlandi, kona Herjólfs, bróður Kristófers, var systurdóttir Þorkötlu og Tómasar; hún var dóttir Jóhönnu Bjarnadóttur.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Bólstaðir og búendur í Stokkseyrarhreppi. Guðni Jónsson. Stokkseyringafélagið í Reykjavík 1952.
- Manntöl.
- Íslendingabók.is.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.