Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1967/Frá síðasta sjómannadegi

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 22. desember 2015 kl. 14:03 eftir Kristinsigurlas (spjall | framlög) Útgáfa frá 22. desember 2015 kl. 14:03 eftir Kristinsigurlas (spjall | framlög) (Ný síða: <big><big><center>FRÁ SÍÐASTA SJÓMANNADEGI</center></big></big><br> <big><center>Koddaslagur á sjómannadaginn 1966.</center></big><br> Útiskemmtanir sjómannadagsins fóru fra...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
FRÁ SÍÐASTA SJÓMANNADEGI


Koddaslagur á sjómannadaginn 1966.


Útiskemmtanir sjómannadagsins fóru fram laugardaginn 14. júní inni í Friðarhöfn. Keppt var í róðri, og tveir ungir menn kepptu í koddaslag og fengu að sjálfsögðu báðir bað í höfninni.
Í róðri var keppt í 3 riðlum:

1. riðill:
Hraðfrystistöð Vestmannaeyja
Skipshöfnin m/b Kópur
Skipshöfnin m/b Gullberg
Sveit Hraðfrystistöðvarinnar vann.

2. riðill:
Sveit Stýrimannaskólans
Sveit Gagnfræðaskólans, verknámsdeild
Sveit Sjóskáta
Sveit Stýrimannaskólans vann.

3. riðill: Sveitir drengja
1. sveit: Austurbær
2. sveit: Miðbær
3. sveit: Vesturbær
Sveit miðbæjardrengja vann.

Allar sveitir, sem unnu í sínum riðli, fengu verðlaun Sjómannadagsráðs, fallega bikara.
Friðrik Jesson stjórnaði og ræsti róðrarsveitirnar að vanda, en Friðrik hefur verið við það starf allt frá upphafi sjómannadagsins.