Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1967/Frá síðasta sjómannadegi
![](/images/thumb/1/1f/Screen_Shot_2016-06-30_at_08.15.05.png/300px-Screen_Shot_2016-06-30_at_08.15.05.png)
![](/images/thumb/9/98/R%C3%B3%C3%B0rarsveit_kemur_%C3%AD_mark.png/300px-R%C3%B3%C3%B0rarsveit_kemur_%C3%AD_mark.png)
![](/images/thumb/7/72/1._ri%C3%B0ill_-_Fremst_er_sveit_Gu%C3%B0j%C3%B3ns_%C3%A1_Gullbergi_%C3%BE%C3%A1_Hra%C3%B0frystist%C3%B6%C3%B0in.png/300px-1._ri%C3%B0ill_-_Fremst_er_sveit_Gu%C3%B0j%C3%B3ns_%C3%A1_Gullbergi_%C3%BE%C3%A1_Hra%C3%B0frystist%C3%B6%C3%B0in.png)
![](/images/thumb/b/bd/Koddaslagur_%C3%A1_Sj%C3%B3mannadaginn_1966.png/300px-Koddaslagur_%C3%A1_Sj%C3%B3mannadaginn_1966.png)
Útiskemmtanir sjómannadagsins fóru fram laugardaginn 14. júní inni í Friðarhöfn. Keppt var í róðri, og tveir ungir menn kepptu í koddaslag og fengu að sjálfsögðu báðir bað í höfninni.
Í róðri var keppt í 3 riðlum:
1. riðill:
Hraðfrystistöð Vestmannaeyja
Skipshöfnin m/b Kópur
Skipshöfnin m/b Gullberg
Sveit Hraðfrystistöðvarinnar vann.
2. riðill:
Sveit Stýrimannaskólans
Sveit Gagnfræðaskólans, verknámsdeild
Sveit Sjóskáta
Sveit Stýrimannaskólans vann.
3. riðill: Sveitir drengja
1. sveit: Austurbær
2. sveit: Miðbær
3. sveit: Vesturbær
Sveit miðbæjardrengja vann.
Allar sveitir, sem unnu í sínum riðli, fengu verðlaun Sjómannadagsráðs, fallega bikara.
Friðrik Jesson stjórnaði og ræsti róðrarsveitirnar að vanda, en Friðrik hefur verið við það starf allt frá upphafi sjómannadagsins.