Carl Henning Bohn verslunarstjóri
Carl Henning Bohn verslunarstjóri í Garðinum fæddist 1826 og lést 29. janúar 1863.
Hann fluttist til Eyja frá Kaupmannahöfn 1857 og var verslunarstjóri til dd. 1863.
Hans er getið sem meðlims í Lestrarfélaginu 1862.
Bohn fór til Kaupmannahafnar 1861, kom aftur 1862.
Hann lést 1863, „dó eftir langvarandi sjúkdóm er síðast var samfara vatnssýki“
og var jarðsettur 6. febrúar, „grafinn upp aftur 24. ágúst eftir beiðni hlutaðeigandi vandamanna, og líkið flutt til Kaupmannahafnar“.
Verslunarstjórinn var ókvæntur.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Blik 1962, Saga Bókasafns Vestmannaeyja, II. hluti
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.