Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1993/Stytting Hörgaeyrargarðs
Stytting Hörgaeyrargarðs
Þann 20. júlí 1992 var undirritaður samningur við Hafverk hf. um styttingu Hörgaeyrargarðs um 60 m og dýpkun innsiglingar í 7,5 m miðað við meðalstórstraumsfjöru. Verktilboðið 39,5 milljónir kr. Verkið hófst með dýpkun 11. ágúst 1992. Byrjað var að fjarlægja garðinn 27. ágúst og var það gert í tveimur áföngum. Verkinu lauk 16. nóvember 1992.
Hafverk hf. náði ekki að ljúka dýpkun í innsiglingu en þegar þetta er skrifað stendur til að ljúka því í maí með öðrum verktaka. Innsiglingin er nú 6 m djúp. en eins og áður segir er gert ráð fyrir að hún verði 7,5 m og að minnsta kosti 60 m renna í gegnum grjóteyrina í innsiglingunni. Þegar verkinu er lokið á að setja nýjan vita á garðinn. Er það listaverk hannað af Grími Marinó Steindórssyni. Listaverkið hefur þegar verið smíðað í Vélsmiðjunni Þór í Vestmannaeyjum.