Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1975/Gjafabréfið
Gjafarbréfið
Bæjarstjórn Vestmannaeyja.
Sjómannadagsráð Vestmannaeyja hefur ákveðið að Dvalarheimilissjóður sá, sem til er innan ráðsins, skuli renna til lagfæringar og uppgræðslu á lóðinni kringum Elliheimilið. Sjóðurinn er í dag sjö hundruð þúsund, og væntir ráðið þess, að sjóðurinn muni eflast og stækka, eftir að nú er komið Elliheimili í Vestmannaeyjum, og það verði gengið í því að fullhanna og ganga frá lóðinni í kringum húsið svo fljótt sem auðið er.
Vestmannaeyjum 22. sept. 1974 F.h. Sjómannadagsráðs Vestmannaeyja
Jóhannes Kristinsson, form. Sigmar Þór Sveinbjörnsson, gjaldkeri