Rannveig Þorvaldsdóttir (Presthúsum)
Rannveig Þorvaldsdóttir húsfreyja í Presthúsum fæddist. 1719 og lést 2. september 1792 úr holdsveiki.
Maður hennar var Eiríkur Björnsson bóndi í Presthúsum við bændatal 1762, látinn fyrir 1785.
Barneignir þeirra eru ókunnar.
(Dánarskrár fyrst haldnar 1785, fæðingarskrár 1786).
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Prestþjónustubók.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.