Guðrún Runólfsdóttir (Vilborgarstöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 11. maí 2015 kl. 13:38 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 11. maí 2015 kl. 13:38 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Guðrún Runólfsdóttir húsfreyja á Vilborgarstöðum fæddist 1782 á Götum í Mýrdal og lést 19. ágúst 1843 í Eyjum.
Foreldrar hennar voru Runólfur Ólafsson bóndi á Götum og í Pétursey í Mýrdal, f. 1740 og kona hans Kristín Gunnsteinsdóttir húsfreyja, f. 1752, d. 30. maí 1817.

Guðrún og Eiríkur giftust 1809. Þau bjugguá hluta Péturseyjar 1809-1810. Guðrún var gift vinnukona á Hellum í Mýrdal 1816 eða fyrr til 1817, er þau Eiríkur fluttust til Eyja, hún vinnukona að Ofanleiti, hann húsmaður að Vilborgarstöðum.
Þau voru komin að Draumbæ 1820 og á því ári fluttist dóttir þeirra Kristín til þeirra frá Sólheimahjáleigu í Mýrdal. Á Vilborgarstöðum bjuggu þau 1828 og síðar.
Guðrún lést 1843.

Maður Guðrúnar, (1809), var Eiríkur Eiríksson sjávarbóndi á Vilborgarstöðum, f. 1783, d. 11. desember 1855.
Börn þeirra hér:
1. Kristín Eiríksdóttir húsfreyja á Moldnúpi u. Eyjafjöllum, f. 1810, d. 20. janúar 1874.
2. Guðlaug Eiríksdóttir, f. 22. febrúar 1819, d. 27. febrúar 1819 úr ginklofa.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.