Guðrún Runólfsdóttir (Vilborgarstöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 8. september 2014 kl. 17:52 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 8. september 2014 kl. 17:52 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Guðrún Runólfsdóttir (Vilborgarstöðum)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Guðrún Runólfsdóttir húsfreyja á Vilborgarstöðum fæddist 1782 á Götum í Mýrdal og lést 19. ágúst 1843 í Eyjum.
Foreldrar hennar voru Runólfur Ólafsson bóndi á Götum og í Pétursey í Mýrdal, f. 1740 og kona hans Kristín Gunnsteinsdóttir húsfreyja, f. 1752, d. 30. maí 1817.

Guðrún og Eiríkur giftust 1809. Þau bjugguá hluta Péturseyjar 1809-1810. Guðrún var gift vinnukona á Hellum í Mýrdal 1816 eða fyrr til 1817, er þau Eiríkur fluttust til Eyja.
Guðrún lést 1843.

Maður Guðrúnar var Eiríkur Eiríksson sjávarbóndi á Vilborgarstöðum, f. 1783, d. 11. desember 1855.
Barn þeirra hér:
1. Kristín Eiríksdóttir, f. 1811. Hún var hjá þeim 1828.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.