Jón Þorsteinsson (Tómasarbæ)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 13. júlí 2014 kl. 19:10 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 13. júlí 2014 kl. 19:10 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Jón Þorsteinsson (Tómasarbæ)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Jón Þorsteinsson bóndi í Tómasarbæ fæddist 1645 og lést á bilinu frá lokum maí 1703- mai 1704.
Jón var bóndi í Tómasarbæ 1703 með konu sinni Emerentíönu, vinnumanninum Dagstyggi Guðmundssyni, og vinnukonunni Helgu Brynjólfsdóttur 18 ára.
Jón er ekki nefndur í Jarðabókinni 1704, en þá er Emerentíana einn af ábúendum á Ofanleiti. Því er ekki ólíklegt, að Tómasarbær hafi verið ein af hjáleigum Ofanleitis.

Kona Jóns var Emerentíana Ásgeirsdóttir húsfreyja, f. 1643, á lífi 1704.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Jarðabók Árna Magnússonar og Páls Vídalíns. Hið íslenska fræðafélag í Kaupmannahöfn 1913-1917.
  • Manntal 1703.