Ögmundur Dagstyggsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. janúar 2015 kl. 21:06 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. janúar 2015 kl. 21:06 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Ögmundur Dagstyggsson bóndi í Voðmúlastaða-Suðurhjáleigu (nú Bólstaður) í A-Landeyjum, f. 1724, líklega í Eyjum, d. 27. september 1805 í Syðstu-Voðmúlastaðahjáleigu.
Faðir hans var Dagstyggur Guðmundsson tómthúsmaður í Hólshúsi 1735, f. 1678.

Systir Ögmundar var Una Dagstyggsdóttir húsfreyja, f. 1713, d. 1789.

Ögmundur og Kristín bjuggu í Hólmi í A-Landeyjum 1762 og 1763, en voru komin að Voðmúlastaða-Suðurhjáleigu 1786. Kristín bjó þar áfram . Hún lést 29. júlí 1806 á Barkarstöðum í Fljótshlíð.

Kona Ögmundar var Kristín Jónsdóttir, f. 1712, líklega á Ysta-Skála u. Eyjafjöllum. Foreldrar hennar voru sennilega Jón Þórðarson bóndi þar, f. 1661, og kona hans Margrét Þorláksdóttir, f. 1669.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.