Ögmundur Dagstyggsson
Ögmundur Dagstyggsson bóndi í Voðmúlastaða-Suðurhjáleigu (nú Bólstaður), f. 1724, líklega í Eyjum, d. 27. september 1805 í Syðstu-Voðmúlastaðahjáleigu í A-Landeyjum.
Faðir hans var Dagstyggur Guðmundsson tómthúsmaður í Hólshúsi 1735, f. 1678.
Ögmundur og Kristín bjuggu í Hólmi í A-Landeyjum 1762 og 1763, en voru komin að Voðmúlastaða-Suðurhjáleigu 1786. Kristín bjó þar áfram . Hún lést 29. júlí 1806 á Barkarstöðum í Fljótshlíð.
Kona Ögmundar var Kristín Jónsdóttir, f. 1712, líklega á Ysta-Skála u. Eyjafjöllum. Foreldrar hennar voru Jón Þórðarson bóndi þar, f. 1661, og kona hans Margrét Þorláksdóttir, f. 1669.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.