Hallur Hróbjartsson (Búastöðum)
Hallur Hróbjartsson bóndi á Búastöðúm fæddist um 1727 og lést 3. mars 1808.
Hann var bóndi á Búastöðum 1801 og bjó þar ásamt konu sinni Önnu Árnadóttur og dóttur þeirra Ragnhildi Hallsdóttur.
Hallur hlaut heiðurspening fyrir umbætur í jarðrækt, líklega tilraunir til kornræktar á síðari hluta 18. aldar.
Hans er getið í formannavísum Magnúsar Magnússonar vertíðina 1765.
- Tólfæring út á elfu
- allvel Hróbjartsson Hallur
- keyrir á kembings mýri
- kári þá veltir báru
- forðast ei fisk að myrða
- flyðrum sízt vægðar biður
- trönu flóðs tólf með fjöðrum
- Týr bauga fullvel stýrir.
- Tólfæring út á elfu
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Manntal 1801.
- Prestþjónusubók.
- Saga Vestmannaeyja I./VIII. Þjóðlífslýsingar, 5. hluti.
- Saga Vestmannaeyja II. Einokunarverzlunin.
- Sögur og sagnir úr Vestmannaeyjum, Formannavísur og hásetaraðir.