Sigríður Bjarnadóttir (Kornhól)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 17. mars 2014 kl. 11:14 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 17. mars 2014 kl. 11:14 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Sigríður Bjarnadóttir húsfreyja í Kornhól fæddist 25. janúar 1814 á Miðhúsum og lést 25. september 1857.
Foreldrar hennar voru Bjarni Björnsson bóndi á Miðhúsum, f. 1752, d. 23. nóvember 1827 og kona hans Halldóra Pétursdóttir húsfreyja, f. 1774, d. 1. maí 1822.
Sigríður var með foreldrum sínum á Miðhúsum 1816, vinnukona á Oddsstöðum 1835, húsfreyja í Kornhól 1845 og 1850 og 1855, d. fyrir manntal 1860.

Maður Sigríðar, (19. október 1838), var Helgi Jónsson bóndi og formaður í Kornhól, f. 9. júlí 1806 á Eystri-Klasbarði í V-Landeyjum og lést 17. júní 1864, drukknaði.

Börn þeirra Sigríðar:
1. Ingvar Helgason, f. 10. ágúst 1840, d. 30. október 1834 úr ginklofa.
2. Kristín Helgadóttir, f. 26. júní 1842 í Dölum, d. 10. júlí 1842 úr ginklofa.
3. Bjarni Helgason, f. 30. ágúst 1844, d. 3. júlí 1869.
4. Árni Helgason, f. 1848.
5. Jónas Helgason, síðar í Nýjabæ f. 26. september 1851, d. 15. apríl 1914.
Barn Helga frá fyrra hjónabandi og stjúpdóttir Sigríðar var
6. Helga Helgadóttir, f. 12. apríl 1836, d. 29. desember 1914.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Saga Vestmannaeyja. Sigfús M. Johnsen. Ísafoldarprentsmiðja h.f. 1946.
  • Vesturfaraskrá 1870-1914. Júníus H. Kristinsson. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands 1983.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.