Verkamannabústaðir (við Urðaveg)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 10. júlí 2006 kl. 11:36 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 10. júlí 2006 kl. 11:36 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Við Urðaveg 46-52 stóðu hús sem kölluð voru Verkamannabústaðir. Þetta voru fjögur tveggja hæða steinhús á kjallara í jarðhæð.

Húsin fóru undir hraun 21. mars í gosinu 1973. Hafði hraunið ýtt þeim hverju á annað og hrundu þau þannig niður. Þessir íbúar voru í Verkamannabústöðunum þegar gaus:

  • Hús nr. 46: Finnbogi Már Gústafsson; Óli Þór Alfreðsson, ásamt konu sinni Hrönn Þórðardóttur og tveimur börnum þeirra. Óli Þór Ólafsson frá Nýhöfn, ásamt konu sinni Hofdísi Ingunni Bjarnadóttur og syni þeirra.
  • Hús nr. 48: Kolbeinn Ólafsson, ásamt konu sinni Maríu J. Njálsdóttur og fjórum börnum þeirra. Óskar Árnason, ásamt konu sinni, Kristínu Þorsteinsdóttur og dóttur þeirra.
  • Hús nr. 50: Anna Mathiesen; Jón Ingi Steindórsson, ásamt konu sinni Elínborgu Bernódusdóttur frá Borgarhól og þremur börnum þeirra. Sverrir Gunnlaugsson, ásamt konu sinni Kolbrúnu Þorsteinsdóttur og syni þeirra.
  • Hús nr. 52. Bernharð Ingimundarson, ásamt konu sinni Fjólu Sigurðardóttur og þremur börnum þeirra. Valur Oddsson, frá Dal, ásamt konu sinni Kristínu J. Stefánsdóttur og dóttur þeirra.

Heimildir