Vilborg Guðmundsdóttir (Gjábakka)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 9. apríl 2014 kl. 13:52 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 9. apríl 2014 kl. 13:52 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Vilborg Guðmundsdóttir (Gjábakka)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Vilborg Guðmundsdóttir vinnukona fæddist 8. september 1834 í Steinasókn u. Eyjafjöllum og lést 26. júní 1887.
Foreldrar hennar voru Guðmundur Hávarðsson, f. 1810, d. 28. maí 1860, og barnsmóðir hans Halldóra Guðmundsdóttir vinnukona, f. 1793, d. 16. maí 1863.

Vilborg var með föður sínum og fósturmóður á Gjábakka 1840, fósturbarn á Löndum 1845, 16 ára vinnukona á Oddsstöðum 1850, ógift í Hallberuhúsi 1860, sjálfrar sín í Háagarði 1870.
Alnafna hennar, f. í Steinasókn, var ógift vinnukona í Nikulásarhúsi í Fljótshlíð 1880.
Hún var ógift og barnlaus.


Heimildir