Jón Guðmundsson (formaður)
Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir aðra sem hafa borið nafnið „Jón Guðmundsson“
Jón Guðmundsson fæddist 15. júlí 1905 og lést 4. mars 1972.
Foreldrar hans voru Guðmundur Magnússon f. 5.09.1877 - d. 21.09.1959 og Helga Jónsdóttir f. 19.01.1874 - d. 19.10.1947.
Jón var kvæntur Rósu Guðmundsdóttur. Börn þeirra voru Gunnar f.1940 d.2013, Guðmundur f.1943 d.1945, Helga f.1947 og Guðríður f.1958.
Fjölskyldan bjó fyrst í Miðey við Heimagötu og svo á Kirkjubæjarbraut 9.
Jón var formaður á mótorbátnum Ver.
Óskar Kárason samdi formannavísu um Jón:
- Jafnan sigli jagtar braut
- Jón frá Goðalandi,
- afla löngum háan hlaut
- hetjan síróandi.
Óskar samdi seinna aðra vísu um hann:
- Jón Guðmunds, sannur sonur,
- sýnir þétt aflann fína.
- Ver stýrir bragninn bæri,
- bárur þó ýfi Kári.
- Bólgnum í brima svelgi
- blakk súða lætur flakka.
- Heppinn sá kólgu kappi
- kann sín á miðum hranna.
Heimildir
- Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.