Valhöll
Valhöll er hús við Strandveg sem byggt var árið 1911¹, af Ágústi Gíslasyni, í kálgarðinum við Landlyst. Valhöll er eitt fyrsta steinsteypta húsið sem var byggt í Eyjum. Það var í eigu Þorsteins Eyjajarls, og á þeim tíma stóð það alveg við fjöruborðið, sem náði á þeim tíma að þeim stað þar sem bensíndælurnar eru við verslunina Klett í dag.
¹Haraldur Guðnason. Við Ægisdyr: Saga Vestmannaeyjabæjar í 60 ár, I. bindi. Reykjavík: Vestmannaeyjabær, 1982.