Hljómskálinn

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 11. febrúar 2006 kl. 00:26 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) Útgáfa frá 11. febrúar 2006 kl. 00:26 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) (Setti inn tengla)
Fara í flakk Fara í leit
Hljómskálinn

Húsið Hljómskálinn var byggt árið 1930 og stendur við Hvítingaveg 10. Það var Lúðrasveit Vestmannaeyja sem réðst í þessa byggingu og þaðan er nafnið til komið. Var húsið ætlað bæði til æfinga sem og tónleikahalds. En þetta reyndist Lúðrasveitinni fjárhagslega ofviða og fáeinum árum síðar keypti Sveinbjörn Einarsson, smiður frá Þorlaugargerði vestra, húsið og breytti því í íbúðarhús en var með smíðaverkstæði í kjallaranum þar sem hann m.a. sagði ungum mönnum til í handavinnu. Árið 1944 keypti síðan Magnús Magnússon frá Lyngbergi húsið og þar bjuggu árið 2005 Sveinn Magnússon, sonur hans, fyrrum lögreglumaður og kennari og kona hans, Sigríður Steinsdóttir (Sissa) frá Múla. Í kjallaranum er enn þá smíðaverkstæði.


Heimildir

  • Munnleg frásögn Sveins Magnússonar.