Magnús Magnússon (Vesturhúsum)
Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir aðra sem hafa borið nafnið „Magnús Magnússon“
Magnús Magnússon fæddist 12. september 1905 að Vesturhúsum og lést 26. maí 1978. Hann var sonur Magnúsar Guðmundssonar og Jórunnar Hannesdóttur. Kona Magnúsar var Kristín Margrét Ásmundsdóttir frá Seyðisfirði.
Þrátt fyrir að Magnús hafi alist upp á sjómannsheimili ákvað hann að læra trésmíði hjá Jóhanni Jónssyni frá Brekku og varð húsasmíða- og húsgagnasmíðameistari. Hann ásamt fleirum stofnaði síðar fyrirtækið Smið hf. árið 1945 sem hann átti fram yfir gos. Magnús var heiðursfélagi í Iðnaðarmannafélaginu, virkur í starfi Sjálfstæðisflokksins og eldheitur Týrari.
Önnur umfjöllun á Heimaslóð: Ritverk Árna Árnasonar/Magnús Magnússon (Vesturhúsum)