Hallur Hróbjartsson (Búastöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. janúar 2014 kl. 12:00 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. janúar 2014 kl. 12:00 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Hallur Hróbjartsson bóndi á Búastöðúm fæddist um 1727 og lést 3. mars 1808.
Hann var bóndi á Búastöðum 1801 og bjó þar ásamt konu sinni Önnu Árnadóttur og dóttur þeirra Ragnhildi Hallsdóttur.
Hallur hlaut heiðurspening fyrir umbætur í jarðrækt, líklega tilraunir til kornræktar á síðari hluta 18. aldar.
Hans er getið í formannavísum Magnúsar Magnússonar vertíðina 1765.


Heimildir