Lönd-mið
Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir önnur hús sem hafa borið nafnið „Lönd“
Húsið Lönd-mið stóð við Landagötu 15a, það var byggt árið 1908. Húsið fór undir hraun 1973. Sigurður Jónsson og Ástríður Jónsdóttir byggja húsið, þar búa einnig sonur þeirra Kristinn Sigurðsson og kona hans Oktavía Jóhannsdóttir
Þegar gaus bjuggu þar systurnar Sigrún, f. 1921, og Júlía Rósa, f. 1924, Kristinsdætur.
Heimildir
- Íbúaskrá 1. desember 1972.
- Verkefni Húsin undir hrauninu 2012.