Jóhann Vilhjálmsson (Selalæk)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 30. júlí 2014 kl. 17:43 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 30. júlí 2014 kl. 17:43 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Viglundur færði Jóhann Vilhjálmsson á Jóhann Vilhjálmsson (Selalæk))
Fara í flakk Fara í leit
Gerður og Jóhanna Jóhannsdætur

Jóhann Vilhjálmsson fæddist 1893 og lést árið 1967. Hann kom til Vestmannaeyja 1917 og gerðist sjómaður á Blíðu hjá Sigurjóni Sigurðssyni frá Brekkuhúsi.

Formennsku byrjaði Jóhann árið 1921 með Faxa sem var stór og nýr bátur. Eftir það var hann formaður með Helgu og Sæbjörgu. Árið 1935 kaupir Jóhann nýjan bát, ásamt Sæmundi Jónssyni í Jómsborg. Bar hann nafnið Gulltoppur og var Benóný Friðriksson í Gröf formaður.

Eftir að Jóhann hætti á sjónum fór hann að vinna í Hraðfrystistöð Vestmannaeyja.


Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. 5 tbl. 1968. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.