Lúðvík Bergvinsson
Lúðvík Bergvinsson er fæddur í Kópavogi 29. apríl árið 1964. Foreldrar hans eru Bergvin Oddsson, skipstjóri og María Friðriksdóttir. Eiginkona Lúðvíks er Þóra Gunnarsdóttir. Þau eiga eina dóttur, Jóhönnu Leu.
Lúðvík lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautaskólanum á Akranesi árið 1985 og lögfræðiprófi frá Háskóla Íslands árið 1991. Þá hefur hann skipstjórnarréttindi á 30 tonna skip frá 1980.
Hann var fulltrúi hjá bæjarfógeta, síðar sýslumanns, í Vestmannaeyjum, frá 1991 til 1994, deildarstjóri hjá Rannsóknarlögreglu ríkisins um sex mánaða skeið frá 1993 til 1994 og yfirlögfræðingur í umhverfisráðuneytinu frá 1994 til 1995.
Lúðvík lék með meistaraflokki ÍBV, ÍA, Leifturs og ÍK á árunum 1983 til 1991.
Lúðvík hefur setið á Alþingi frá 1995, fyrst fyrir Alþýðuflokkinn í Suðurlandskjördæmi og frá 2003 fyrir Samfylkinguna í Suðurkjördæmi.
- Menntamálanefnd, 1995-1996.
- Landbúnaðarnefnd, 1995-1999 og frá 2003.
- Sérnefnd um stjórnarskrármál, 1995-1996.
- Sjávarútvegsnefnd, 1996-1999.
- Samgöngunefnd, 1999-2003.
- Allsherjarnefnd, 1999-2003.
- Efnahags- og viðskiptanefnd, frá 2003.
- Kjörbréfanefnd, frá 2003.
- Íslandsdeild VES-þingsins, 1999-2003.
- Íslandsdeild þingmannanefndar EFTA, frá 2003.
- Auðlindanefnd forsætisráðherra, 1998-2000.
Heimildir