Helgafellsvöllur

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 27. nóvember 2005 kl. 07:36 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) Útgáfa frá 27. nóvember 2005 kl. 07:36 eftir Sigurgeir (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Þessi knattspyrnuvöllur, við rætur Helgafells að vestan, varð til vegna vikurhreinsunar í Helgafelli. Vikrinum var rutt niður til vesturs, jafnað úr honum og þannig myndaðist hið ágætasta vallarstæði. Mold var síðan sett ofan á vikurinn og grasfræi sáð í hana. Grasvöllurinn var formlega tekinn í notkun árið 1978 og hefur aðallega verið notaður sem æfingavöllur auk þess sem hann hefur verið heimavöllur KFS, Knattspyrnufélagsins Framherja Smástundar.