Dalbúinn

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 26. nóvember 2005 kl. 20:39 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) Útgáfa frá 26. nóvember 2005 kl. 20:39 eftir Sigurgeir (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Þjóðhátíðarlag
1985 1986 1987


Heyrði ég hvíslað
hamraveggnum frá,
hér á ég heima
hulduslóðum á.
Fegurðin fyllir
fjallasalinn minn.
Hann er minn heimur
Herjólfsdalurinn.
Svaraðu, svaraðu
segðu ekki nei.
Þú hefur heillað
unga huldumey.
Bergstallar byrgja
breiðar hamradyr,
viltu minn vinur
verða hérna kyr.
Svaraðu, svaraðu
segðu ekki nei.
Þú hefur heillað
unga huldumey.
Svaraðu, svaraðu, o.s.frv.



Lag: Ólafur M Aðalsteinsson
Texti: Guðjón Weihe