Ég meyjar á kvöldin kyssi

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Þjóðhátíðarlag
1987 1988 1989

Ég meyjar á kvöldin kyssi var Þjóðhátíðarlagið árið 1988.

Undrin gerast enn þá hér í dalnum
allt sem lifir tekur gleðisprett.
Undir fótinn hrundin gefur halnum
hiklaust bak við lýstan Fjósaklett.
Með ástarheitum kossaflaum er kannað
hvort að þeim sé amorsörin send.
Já þegar kvöldar skeður eitt og annað
enda dyggðagatan þokukend.
Ég meyjar á kvöldin kyssi
kitla og tra, la, la,la.
Ég meyjar á kvöldin kyssi
kitla og tra,la,la,la.
Meðan kvenmannslend í dansi dillast
og drukkin er hin guðdómlega saft.
Hvergi betra vinur er að villast
því vífin hafa dulinn segulkraft.
Þegar kulna klettabálsins glæður
og komin er hin ljúfa næturró.
Gamla drauma skoða mæddar mæður
og mörgum þeirra verður um og ó.


Lag: Ólafur M Aðalsteinsson
Texti: Guðjón Weihe