Sumarnótt
Þjóðhátíðarlag | ||
1995 | 1996 | 1997 |
- Húmar að kveldi
- Nóttin læðist inn
- Dúnalogn í dalnum
- Rætist draumur minn
- Með hnotubrúnum augum
- horfir þú til mín
- Í öllum mínum æðum
- brennur ást til þín
- Söngvar óma úr hverju tjaldi
- gleðja sérhvert hjarta
- Þjóðhátíðarstemmingin
- og sumarnóttin bjarta
- Haltu mér í örmum þínum
- þú undraveröld, Eyjar
- Allt of stuttur þessi tími
- í faðmi yngismeyjar
- Þú strýkur mér um vangann
- heit er þín hönd
- Atlot þín mig senda
- í ævintýralönd
- Við mildan bjarma logans
- gleymum stað og stund
- Enginn betri staður
- fyrir ástarfund
Höfundar: Sveinbjörn Grétarsson og Kristján Viðar Haraldsson.