Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk
Fara í leit
- Eyjan mín bjarta nú leik ég þér lag,
- svo ljómandi fögur þú ert.
- Ég dái þig ávallt hvern einasta dag
- að dá þig er aldeilis vert.
- Nú sárin þín gróa,nú vermir þig sól,
- nú sóley á bökkum þér grær
- Og alls konar fuglar enn byggja sér ból,
- í berginu,Eyjan mín kær.
- Fólkinu fjölgar í Eyjunum enn
- og öllum ber saman um það.
- Hér eigi það heima,hér eigi það senn
- heimsins fegursta stað.
- Byggðin hún stækkar nú dag eftir dag
- dafnar svo ótrúlegt er.
- Ég eigna þér Eyja mitt ljúfasta lag
- og lagið nú hefurðu hér.
- Nú hátíð fer í hönd
- halda mun ég tryggðarbönd
- við þig elsku Eyjan mín
- ávallt frá þér hlýja skín.
- Lag og texti: Gylfi Ægisson