Snið:Grein vikunnar

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 2. júlí 2010 kl. 11:50 eftir Inga (spjall | framlög) Útgáfa frá 2. júlí 2010 kl. 11:50 eftir Inga (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Ástand heilbrigðismála á Íslandi á 18. og 19. öld var dönskum stjórnvöldum stöðugt áhyggjuefni og ítrekað voru sendar tillögur til úrbóta á ýmsum málum og síðan fyrirspurnir um hvers vegna ekkert væri gert í málunum. Dönsk heilsupólitík átti að tryggja heilbrigði sem flestra til þess að efla vinnumarkaðinn og minnka útgjöld til fátækramála. Íslenskir embættismenn létu hjá líða að skipta sér af málum ef mögulegt var enda virðast þeir ekki hafa verið sammála þeirri stefnu sem rekin var af hálfu heilbrigðisyfirvalda.

Lesa meira