Blik 1941, 1. tbl/Reiðarslag

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 19. júní 2012 kl. 09:58 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 19. júní 2012 kl. 09:58 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Efnisyfirlit 1941


Reiðarslag.


Sem betur fer eru þrumur og eldingar fátíðar hér á landi, og þekkjast helzt ekki á Norður-og Austurlandi. Sjaldan hefir hlotizt slys af þeirra völdum. Þó dó langafi minn af reiðarslagi. Hann hét Þorsteinn Ólafsson, ættaður úr Fljótshlíðinni. Slysið vildi þannig til, að þeir voru tveir saman á ferð skammt frá Skipagerði í Landeyjum. Þeir riðu geyst, því að þeir voru að flýta sér undan illviðriséli. Laust þá eldingu niður og drap annan manninn og báða hestana. Þessi atburður vakti mjög mikið umtal sem vonlegt var. Hann hefir gerzt einhvern tíma á árunum 1860—1870.

Ebba Þorsteinsdóttir,
Laufási.
1. bekk.