Blik 1972/Friðrik Guðmundsson frá Batavíu áttræður
- Ég heilsa nú vini á hátíðisdegi,
- því hlýleik minn á'ann, þó að lítið ég segi.
- Um ævibraut farna og árin hans gengin
- þar allflestir þekkja minn góðvin, þann drenginn.
- Ég heilsa nú vini á hátíðisdegi,
- Já, kynningin fyrsta, hún var nú í veri,
- á „Valnum“ fyr' austan, er með mér hann reri.
- Afli mjög tregur og allt ei sem skyldi,
- það ei honum breytti, en sýndi hans gildi.
- Já, kynningin fyrsta, hún var nú í veri,
- Og seinna við rerum hér saman í Eyjum,
- og sjá, þá var afli í lagi, - við segjum.
- Ekki var karl sá þá neitt úr að draga, -
- nei, ýtti á frekar og taldi ei til baga.
- Og seinna við rerum hér saman í Eyjum,
- Ef dætur hans Ægis vel dönsuðu saman
- og djarflega sótt var, það fannst karli gaman,
- og bátinn að finna í brimfextum öldum,
- svo brakaði' í innvið af trjástofni völdum.
- Ef dætur hans Ægis vel dönsuðu saman
- Þess skal og getið, að verkin hans vóru
- vandlega unnin í smáu og stóru;
- hann vélina hirti og vel þar að gætti,
- að vélin ei missti af pústi né slætti.
- Þess skal og getið, að verkin hans vóru
- En nú er hann orðinn svo aldinn að árum,
- að alveg er hættur að sýsla með bárum;
- því árin þau líða og áttræður er hann,
- þó elli kerlingu af léttleika ber 'ann.
- En nú er hann orðinn svo aldinn að árum,
- Og nú er hann heima við bæinn sinn bjarta
- hjá brosmildri frúnni, sem yljar hans hjarta.
- Og saman þau lifa í sælu og gengi,
- já, sumarið þar hefur enzt nokkuð lengi.
- Og nú er hann heima við bæinn sinn bjarta