Blik 1950/Heimaey, kvæði

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 1. júní 2010 kl. 20:43 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 1. júní 2010 kl. 20:43 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Efnisyfirlit 1950



UNA JÓNSDÓTTIR
Heimaey
Þú blessuð eyja, blómguð, þýð,
þig blessi Drottinn alla tíð.
Þú verður alltaf vinamörg
og veitir stóra björg.
Ég fæddist upp við fellið þitt;
þú fyrirleizt ei nafnið mitt;
allir sem að una hér,
þeir unna líka þér.
Og ég hef tínt þín blessuð blóm,
er bæta mönnum heilsutjón,
svo oft til bata öðrum hér
og einnig líka mér.