Fell
Húsið Fell stendur við Vestmannabraut 34. Magnús Magnússon, formaður, reisti húsið árið 1907. Húsið hefur frá upphafi verið í eigu sömu fjölskyldu og nú býr þar sonarsonur og nafni Magnúsar, Magnús Grímsson fyrrverandi skipstjóri, ásamt konu sinni Aðalbjörgu Þorkelsdóttur frá Sandprýði.