Blik 1936, 3. tbl./Þjóðsagnir úr eyjum
Blik 1936, 3. tbl.
ÞJÓÐSAGNIR ÚR EYJUM
AKURDRAUGURINN.
EINHVERJU sinni var það fyrir löngu, að bóndinn, sem þá bjó á Eystri-Gjábakka í Vestmannaeyjum, bað vinnumann sinn, sem var búinn til kirkjugöngu á jóladaginn, að fara austur á Urðir og bjarga upp tré, sem rekið væri í Rekabás.
Vinnumaður tók illa undir þetta, og varð þeim bónda mjög sundurorða út af förinni. Þó lauk viðureign þeirra, fyrir harðfylgi bónda, á þá lund, að vinnumaður hafði fataskifti og fór á rekann, en annað heimilisfólk fór til Landakirkju að hlýða messu.
Vinnumaður drukknaði þarna í básnum, er hann var að eiga við tréð, og gekk hann aftur, eins og títt var um menn, sem létust með heiftarhug til einhvers. Þegar kirkjufólkið kom aftur heim frá messu, sá það vinnumann á bæjardyrabitanum, þar sem hann skemmti sér við að flá kött. Af afturgöngu þessari urðu svo mikil brögð að reimleikum á Eystri-Gjábakka, að bóndi flúði af bænum með skyldulið sitt, því að honum var þar ekki við vært. Eftir það var þar ekki búið um nokkurn tíma, þar til Abel sýslumaður flutti þangað.
Telja menn, að draugurinn hafi aðallega haft hæli sitt í móanum austur af Eystri-Gjábakka, en einnig í Landahelli. Áttu einhver undirgöng að liggja á milli þessara staða.
Abel sýslumaður var mikill búsýslumaður, og hóf, skömmu eftir að hann kom að Gjábakka, tilraunir til akuryrkju í móanum austan við bæinn, þar sem draugurinn átti að hafa hæli sitt, og síðan hefir verið nefnt Akur.
Lét sýslumaður Svein Hjaltason vinnumann sinn starfa að landbrotinu. Draugurinn tók þetta illa upp, og urðu ásóknir hans við Svein svo magnaðar, að hana sturlaðist á geði.
Ekki heppnuðust akuryrkjutilraunir sýslumanns og var drauginum kennt um það.