Blik 1936, 1. tbl./Fjöruferð

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 8. september 2009 kl. 15:07 eftir Saerun (spjall | framlög) Útgáfa frá 8. september 2009 kl. 15:07 eftir Saerun (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

FJÖRUFERÐ

ÞAÐ var árla morguns fyrir páska í fyrra, að ég vaknaði og leit út um gluggann, og sá, að fyrstu geislar sólarinnar voru að teygja sig upp fyrir Skarðshlíðarfjall. Himininn var heiður og blár, og roði í austri. Mér varð litið á sjóinn, sem var úfinn eftir undanfarandi austanátt, og þegar sjór deyr snögglega um þenna tíma árs, og veður gengur til norðanáttar, er oft mikill fiskreki. Um leið og ég nuddaði stýrurnar úr augunum, ásetti ég mér að skreppa á fjöru.

Ég klæddi mig í snatri, því ekki veitti mér af að flýta mér, því fuglinn er árla á ferli, og hirðir þá allt ætilegt, sem í fjörunni liggur. Því næst sótti ég mér hest og lagði á hann hnakk og spennti á hann allt, hvað ég gat hugsað mér, að ég þyrfti að nota til ferðarinnar. Ég klæddi mig vel, því oft er stormur við sjóinn, þó logn sé upp við fjallið.

Mér gekk ágætlega suður á fjöru. Mér varð fyrst litið á Ægi, sem kastaði til mín kveðju með þungri og dynjandi raust. Ég staðnæmdist á kampinum. Það er malar- og sandhryggur, sem sjórinn hefir myndað í stórveltum. Er ég litaðist þar um, sá ég skammt frá ágrynni af fugli, sem sýnilega var að gerja í æti. Þegar þangað kom, var þar engan fisk að sjá. Ég hélt því áfram út fjöruna. Þegar ég kom út á miðja fjöruna, sá ég þéttan hnapp af fugli á einum stað. Ég trúði varla mínum eigin augum, þegar ég kom þangað og sá, að hver fiskurinn lá við annan á smábletti, og þurfti nú snör handtök. Ég snaraði mér af baki og tók til óspilltra málanna við að seila fiskinn upp og láta hann jafnóðum á hestinn. Þegar ég hafði bjargað því, sem rekið var, rak fiskinn svo ört, að ég hafði naumast við að hirða hann upp og seila.