Ólafur Magnússon (Sólvangi)
Ólafur Magnússon frá Sólvangi fæddist 3. maí 1903 og lést 4. nóvember 1930. Foreldrar hans voru Magnús Jónsson og Hildur Ólafsdóttir.
Systkini hans voru:
- Jón, vinnuvélastjóri, kvæntur frú Sigurlaugu Sigurjónsdóttur,
- Sigurður, verkstjóri, kvæntur frú Jóhönnu Magnúsdóttur,
- Kristinn, skipstjóri, kvæntur frú Helgu Jóhannesdóttur.
- Unnur, var gift Hinrik heitnum Jónssyni bæjarstjóra í Vestmannaeyjum og síðar sýslumanni í Stykkishólmi,
- Sigurbjörg, gift Axel Halldórssyni, stórkaupmanni,
- Rebekka, hárgreiðslumeistari, ógift.
Ólafur var kvæntur frú Ágústu Pedersen.
Ólafur var stofnandi og ritstjóri Víðis. Hann var föðurfaðir Ólafs F. Magnússonar fyrrv. borgarstjóra í Reykjavík.