Húsavík

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. júlí 2012 kl. 19:10 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. júlí 2012 kl. 19:10 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Urðavegur 28a Húsavík vestari þar bjuggu á árunum 1960 til 1966 hjónin Sigríður Angantýssdóttir og Jón Kjartansson en þessi mynd er tekin af þremur elstu börnum þeirra í garðinum í Húsavík. Einar Gylfi, Helga og Kjartan. Í baksýn er Gjábakkatúnið og hús við Bakkastíginn.
Þessi mynd er tekin frá Hjálmholti til vesturs yfir kartöflugarðinn. Á hægri hönd sést í Húsavík sem stóð við Urðaveg 28a. Þar næst sést vel í Stóru Fagurlyst, þá næst í Steina. Fyrir miðri mynd sést kofinn á Pétó.

Húsið Húsavík stóð við Urðaveg 28a. Það var Auðunn Jónsson sem reisti það. Húsavík var tvíbýlishús. Í eystri hlutanum bjó, þegar gaus, Jón, sonur Auðuns og Sigríður Jónsdóttir kona hans. Jón var ævinlega kenndur við húsið, sem og synir hans; Sigurður Jónsson fyrrum vallarstjóri og verkstjóri, hefur t.d. ávallt verið nefndur Siggi í Húsavík. Í vestari hlutanum bjó lengi Kjartan Ólafsson, fiskmatsmaður, faðir Jóns fyrrum verkalýðsleiðtoga. Í þeim hluta hússins bjuggu, þegar gaus, Ársæll Árnason smiður, ásamt konu sinni, Ingunni Sigurbjörnsdóttur og dætur þeirra Laufey og Ingunn.


Heimildir

  • Íbúaskrá Vestmannaeyja 1. desember 1972.