Sigurður Ó. Sigurjónsson
Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir aðra sem hafa borið nafnið „Sigurður Sigurjónsson“
![](/images/thumb/6/6f/Sigur%C3%B0ur_Sigurj%C3%B3nsson.jpg/220px-Sigur%C3%B0ur_Sigurj%C3%B3nsson.jpg)
Sigurður Óli Sigurjónsson fæddist 24. janúar 1912 og lést 16. júní 1981. Foreldrar hans voru Sigurjón Sigurðsson fisksali og Kristín Óladóttir. Hann bjó á Þingeyri við Skólaveg 37 frá 1930 til 1954. Þá flutti hann í hús sitt sem hann hafði byggt á Boðaslóð 15.
Kona Sigurðar var Jóhanna Helgadóttir. Þau áttu tvær dætur: Kristínu og Þóru.
Sigurður var formaður með mótorbátinn Freyju.
Óskar Kárason samdi formannavísu um Sigurð:
- Freyju Siggi Sigurjóns
- siglir hryggi Ránar,
- þó að briggið báru lóns
- bylgjur þiggi fránar.
Óskar samdi seinna aðra vísu um hann:
- Sigurður haf við hagur,
- heppinn Sigurjóns greppur,
- Freyju sá vart mun vægja,
- víðir þó stag0nd hýði.
- Siglir greitt rugg í rugli,
- ryður þorsk-net í iðinn.
- Hugmikill Baldur bauga
- bundinn er veiði lunda.
Myndir
Heimildir
- Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.
- Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.