Magnús Magnússon (Felli)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 9. ágúst 2009 kl. 23:45 eftir Elwiz (spjall | framlög) Útgáfa frá 9. ágúst 2009 kl. 23:45 eftir Elwiz (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir aðra sem hafa borið nafnið „Magnús Magnússon


Magnús Magnússon á Felli var fæddur 8.júlí 1873 og lést 25.september 1940. Kona Magnúsar var Guðrún Þórðardóttir. Þau eignuðust tvær dætur, Guðbjörgu f. 11.08.1901 d. 5.5.1982 og Önnu Sigríði fædda 12.02.1908 og dána 11.08.1923.

Magnús kom til Vestmannaeyja um aldamótin 1900 og var formaður þar með opið skip í nokkur ár en 1907 keypti hann Kristbjörgu og var formaður á henni allt til 1926. Magnús var talinn í fremstu röð formanna. Einnig var hann bjargveiðimaður mikill.


Heimildir

  • Jón Sigurðsson. Þegar slysið varð á mb. Portlandi. Sjómannablað Vestmannaeyja. 1963.
  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.